Barnaland síðan okkar
23.07.2006 00:09:30 / ester

Frí í smá stund

Erum komin í blogg frí á þessari síðu en við bloggum samt á barnalandsíðunni núna endilega kíkið og kvittið í gestó það eru  líka komnar nýjar myndir :haha:


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.07.2006 23:28:47 / ester

úrslitin :)


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.07.2006 19:11:15 / ester

bara svona smá blogg

Jæja það er svo löngu kominn tími á blogg hjá mér en maður hefur ekkert haft sig í það eftir að litli prinsinn minn kom í heiminn. Það gengur allt rosalega vel hjá okkur hann var samt pínu erfiður fyrstu dagana en það var nú líka bara út af því að hann vildi bara hanga á brjóstinu á mér allan sólahringinn en hann var nú ekkert endilega að drekka heldur notaði hann mig líka sem snuð þannig það var keypt handa honum snuð og þá var þetta allt annað líf. Hann sefur alla nóttina og er rosalega duglegur að borða og svona mér finnst ég bara geðveikt heppinn með hann. Ernesto og Alexander eru rosalega góðir við hann og eru rosa ánægðir með litla bróðir. Við fórum fyrsta göngu túrinn okkarí fyrradag það var svo gott veður en það gekk allt rosa vel litli prinsinn stein svaf bara. Við komum aðeins við hjá mömmu og ég skellti mér á trampólínið það var geðveikt gaman hehe hoppaði í svona 2 mín og þá var maður gjörsamlega búin hehe. Annars er voða lítið að frétta af okkur ef það er eitthvað sem vekur forvitni ykkar þá bara að spyrja í skoðunum og verið svo dugleg að kvitta og já það eru líka komnar nokkrar fleiri myndir á barnalandsíðunni okkar  endilega kvittið þar líka..... Takk Takk


» 5 hafa sagt sína skoðun

15.06.2006 12:28:12 / ester

Kynlífsstjörnuspáin

Þú nálgast kynlífið eins og tilveru þína á hvatvísan og kappsfullan hátt. Þú birtist hér ástríðufull, hégómagjörn, erótísk, rómantísk og oft á tíðum flókin kynvera! - Stjörnumerkin og KYNLÍFIÐ! _______________________________________________________________________________ Hrútur , Þú nálgast kynlífið eins og tilveru þína á hvatvísan og kappsfullan hátt. Þú birtist hér ástríðufull, hégómagjörn, erótísk, rómantísk og oft á tíðum flókin kynvera miðað við stjörnu hrútsins. ..................................................................................................................... Bogmaður , Viðurkenndu tilfinningar þínar en ekki bæla þær niður. Haltu þig við eigin tilfinningar og skynjun. Leitaðu að sameiginlegum hvötum, markmiðum og áhugamálum sem bæta samskiptin. ...................................................................................................................... Steingeit , Þú hefur eflaust nú þegar sent frá þér langanir þínar og mátt vissulega treysta almættinu fyrir framvindu mála hvað varðar drauma þína. ..................................................................................................................... Sporðdreki ,Tjáðu þig og temdu þér þolinmæði. Þú birtist hér tælandi með heitar ástríður en oft á tíðum kalda rökhugsun. .................................................................................................................... Vog , Þú hefur vissulega gaman af því að láta hvísla að þér ástarorðum og æsist allur/öll við létta snertingu og ert að sama skapi fær um að skynja og upplifa það sem heldur lífsvef þínum saman. .................................................................................................................... Meyja, Þú hefur mikinn áhuga á kynferðislegum viðbrögðum þínum því þú uppgötvar sífellt möguleika þína til að upplifa. Þú þarft hinsvegar að læra að kynlíf er meira en samfarir. .................................................................................................................... Naut , Ef þú ert ekki ástfangin(n) er vissulega erfitt fyrir þig að stunda gott kynlíf því þú ert oftar en ekki bundin(n) eigin tilfinningum. Þegar öll skynfæri þín eru örvuð í einu ert þú ánægð(ur) og þegar þú æsist væntir þú fullnægingar. .................................................................................................................... Ljón , Þú æsist hægt og þarft stöðuga örvun. Hægfara kynlíf er þér sannarlega að skapi en til að þú verðir fær um að njóta stundarinnar í faðmi elskhuga þíns þarf hugur þinn, andi og líkami að vera til staðar. .................................................................................................................. Krabbi , Erting með snertingu er nauðsynleg til að koma þér til en á sama tíma veist þú nákvæmlega hvað þú vilt upplifa. Þú ert fær um að deila þekkingu og reynslu með öðrum því þú veist innra með þér að orkuna á ekki að nota til að stjórna heldur til að njóta. .................................................................................................................. Tvíburar , Það er mannlegt að einblína á það sem hefur mistekist en þú ert minnt/ur hér á að þú hefur lag á að upplifa það sem þig ávallt hefur dreymt um í sambandi. Útlit þitt og gáfur eru uppsprettur sem auðvelda þér að ná því sem þú þráir þegar tilhugalíf þitt er annars vegar. .................................................................................................................. Fiskar, Þú birtist hér áköf/ákafur við að skilja eðli og merkingu kynlífs og finnur það eflaust innra með þér að hjarta þitt er rafall sköpunargleðinnar. Hér geislar af þér sjálfsöryggi og reisn á sama tíma og fegurðarskyn þitt er nógu gott til að þú megir treysta því. .................................................................................................................... Vatnsberi, Þú hefur án efa djúpstæða þörf fyrir ást og væntumþykju og þú unir þér eingöngu vel við mikla nálægð. Þú þarft að læra að biðja stöðugt um ástaratlot og ekki síður að njóta stundarinnar að fullu. ....................................................................................................................


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.06.2006 18:34:35 / ester

The love :D


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.06.2006 19:03:39 / ester

Helgin og reynslusaga hehehe..... greyið

Jæja þá er best að koma með nokkur orð. Þessi  helgi var fín á Föstudagskvöldið var farið í partý stoppaði samt ekki lengi en það var samt geðveikt gaman að hitta liðið og einnig Kollu sem maður er nú ekki búin að sjá í nokkuð langan tíma. Á laugardagskvöldið málaði ég mömmu og svo Evu fyrir ballið og það var náttla búið að plana að fara á ballið en við fórum ekki því ég fékk verki sem var svolítið erfitt að átta sig á því þeir komu bara þegar barnið var á fleygi ferð í maganum og barði og sparkaði en læknirinn heldur að þeir hafi komið þegar barnið hreyfði hausinn því það er komið svo neðanlega en allavega þá þorðum við ekki fara á ballið ef maður skildi fara á stað. Ég fór í skoðun í dag og þarf að fara aftur næsta fimmtudag en þá þarf ég að fara inn á akureyri sem er í lagi fyrst maður er farinn að finna fyrir verkjum. En verð að koma með smá sögu hérna inn dauðvorkenni þessari menneskju sem lenti í þessu en ekki það mikið greinilega því ég dó næstum því úr hlátri þegar ég las þetta hehe....

 

                                               Díses hér er ein.,,

Ég var ógeðslega skotin í gæja sem ég horfði löngunaraugum á í langan tíma. Þorði ekki að tala við hann en eitt kvöldið tekur hann eftir mér og byrjar að daðra við mig. Ég lét samt ekki undan strax-lét hann ganga þvílíkt á eftir mér.

Svo kom stóra kvöldið. Ég var búin að ákveða að nú myndi þetta gerast. Nema hvað í leigubílnum á leiðinni heim til hans verður mér svo illt í maganum (óvön að drekka á þessum tíma) og finn að ég er við það að skíta í brækurnar. Sem betur fer tókst mér að halda klessunni á sínum stað en það var auðvitað mjög neyðarlegt að þurfa að byrja á því að hlaupa á klósettið og gera nr.2. og nota bene, það var alveg komið bremsufar í hvítu fínu buxurnar mínar :/ En ég reyndi að þurrka eins og ég gat, bleyti síðan WC pappír og þreif mig eins og hugsast gat. Ég skammaðist mín ógeðslega mikið og ég opnaði alla baðskápa í leit að ilmspreyi eða einhverju til að bjarga mér  eða einhverju til að bjarga mér og á endanum spreyjaði ég rakspíranum út í loftið. Hann fann strax lyktina (af rakspíranum) eftir að ég opnaði hurðina og spurði: Hva.... fékkstu þér rakspíra??? Nei, Nei, svaraði ég, bara að testa lyktina. Allavega... Hann bauð mér í glas, ég gleymi þessu veseni öllu í rómatíkinni sem á eftir fylgdi og svo enduðum við upp í rúmi. Nema hvað að morguninn eftir þegar ég er að fara þá er ég að leita að fötunum mínum sem voru út um allt gólf. Ég beygi mig niður eftir einhverri flík, og þvílíkt PRUMP ryðst úr rassgatinu á mér. Rosa hávaði og allt. Ég dó næstum því.... og dreif mig í nærbuxurnar, sneri mér við til að ná í pilsið mitt og þá segir gæinn: heyrðu elskan.... þú ert í nærbusunum á úthverfunni!!!!! OMG.... ekki nóg með að hafa rekið við eins og togarastjóri framan í gaurinn heldur feisaði ég hann líka með BREMSUFARIÐ utaná. DJÍSES..... Ég er alveg orðinn eldrauð í framan af því að rifja þetta upp. SKAMMAST mín ekkert smá....!!  

 

Hehe  æi guð væri búin að skjóta mig ef ég hefði lent í þessu hehe :haha:



 


» 4 hafa sagt sína skoðun

09.06.2006 19:48:54 / ester

-er hann að nota þig?

 

 



 10 Vísbendingar um að hann vilji bara sofa hjá þér. 

Ekki misskilja merkin sem þér eru send.

Þetta er ekki að þróast í alvarlegt samband þegar hann:

1. Man númerið þitt en ekki fullt nafn.

2.Hringir bara í þig eftir miðnætti og alltaf undir áhrifum áfengis.

3 Símtalið er aldrei lengra en 2-3 mínútur í senn.

4. Vill bara hitta þig heima hjá þér enekki opinberlega.

5. Sendir bara SMS.

6. Hefur ekki áhuga á að vita mikið um þig og á engar alvarlegar samræður við þig.

7. Gistir ekki eða snýr sér strax á hina hliðina og sofnar strax eftir fjörið.

8. Skipuleggur aldrei neitt með þér og kynnir þig ekki fyrir vinum sínum.

9. Leggur sig ekki sérstaklega fram í rúminu og horfir ekki í augun á þér.

10. Hjálpar þér að finna ALLT dótið þitt daginn eftir svo þú gleymir potþétt engu.


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.06.2006 19:11:35 / ester

Mæðraskoðun

Það hefur ekki mikið gerst hjá mér síðan maður bloggaði síðast en gaman að segja frá því að ég er öll að koma til í andlitinu :D og er það vonandi þessum undradrykk að þakka. Líter á dag af þessu á nú örugglega að gera sitt;)  

Ég fór í mæðra skoðun í gær þarf að gera það núna 1-2 í viku en mæðraskoðunin kom ekkert rosalega vel út er komin með 2 plúsa eins og þau sögðu það í þvagið sem er víst ekki gott og vildi læknirinn að ég færi inn til akureyrar en það væri samt ekki must eins og hann sagði því ég er ekki kominn með þrennuna sem er eggjahvíta í þvagið,bjúg og af hár blóð þrýstingur en ég er samt að hækka í blóðþrýsting en það er í lagi segja þau því ég hef alltaf verið svo lág. Svo þarf ég að láta strax vita af mér ef mér fer að líða eitthvað illa um helgina fá t.d hausverk eða verð slopp því þá er eitrunin orðin of mikil og það getur verið hættulegt en sem betur fer er mér bara búið að líða vel meðan við allt hehe en ég þarf að fara aftur á mánudaginn í mæðraskoðun og þá kemur í ljós hvort maður þurfi að fara inn á akureyri.

Læknirinn var líka alveg viss um að ég væri bara að fara eiga núna í vikuni því barnið er komin svo langt niður enda fer ég á klóið alveg gjörsamlega að pissa á mig og það koma nokkrir dropar svo þegar maður er búin að girða sig þá er maður alveg í spreng og hann sagði að það væri útaf því að kollurinn væri farinn að þrýsta svona rosalega á þvagblöðruna og Hann sagði svo ef ég færi að finna fyrir svona eins og smá pílum í magann eins og hann orðaði það þá ætti ég að fara strax inn á ak. Því að þetta værri þá allt að koma. En þetta er komið gott í bili læt ykkur svo vita hvað kemur út úr þessu á mánudaginn hjá mér. Jaaa ef maður verður ekki búin að eiga hehehehe:haha:


» 0 hafa sagt sína skoðun

05.06.2006 17:38:25 / ester

Nákvamlega

Held hreinlega að það sé kominn tími á blogg hjá mér J það er svolítið síðan maður hefur nennt að gera eitthvað hér en  það hefur eitt og annað gerst hjá mér sem ég ætla að segja ykkur frá.

 

 

 

Ég var send á sjúkrahús síðustu  helgi því ég lamaðist vinstramegin í andlitinu :cry:!!!!Fyrst fór ég að fá sjóntruflanir svo á föstudaginn síðasta fer ég að vera svona dofinn í tungunni og eins og ég væri búin að brenna mig á tungunni eða eitthvað voða skrýtið og þegar ég var að borða eitthvað og tuggði það vinstramegin þá fann ég bara ógeðslegt bragð af matnum en ef ég tuggði það hægramegin þá var allt í lagi þá bragðaðist maturinn ein og hann átti að gera. Á laugardags kvöldið þegar ég var að fara aða sofa og var að tannbursta mig þá fannst mér eins og munnurinn á mér væri farinn að skekkjast eitthvað en spáði svo sem ekkert mikið í því og fór bara að sofa.

Eins og við óléttu konurnar erum þá forum við allavega 5-6 sinnum á klóið á næturnar en þá var ég ekki að taka eftir neinu en á sunnudagsmorguninn þegar ég fer á fætur þá fer ég og fæ mér vatn að drekka þá tók ég eftir því að það var ekki allt eins og það átti að vera því vatnið í glasinu lak bara út um allt þegar ég var að reyna að  drekka það!!! Þá tók ég eftir því að ég var lömuð vinstramegin í andlitinu og fékk svona nett sjokk, hringdi strax í mömmu og sagðist þurfa lækni. Mamma varð dauð hrædd og hélt að ég búin að missa vatnið og væri jafnvel kominn á stað8| ;) en ég sagðist vera lömuð í andlitinu og hún sagðist ætla að hringja í lækni og koma strax.

Mamma kom strax til mín og amma og afi. Við bíðum í smá tíma eftir lækninum en hann kom svo loksins og sendi mig inn á Akureyri á sjúkrahús þegar ég var búin að segja honum allt en ég var útskrifuð daginn eftir því það er víst ekkert hægt að gera við þessari lömun. sú skýringin sem ég fékk var að ég væri kominn með svo mikið bjúg. Og bjúginn hafi lagðist á taug sem er sitt hvoru megin í andlitinu og stjórna öllum hreyfingum í andlitinu og lamað hana og ekkert væri hægt að gera nema að taka því rólega og hvíla sig vel svo að bjúgurinn færi. Það kom ein stelpa til þeirra í fyrra upp á sjúkrahús sem lamaðist svona og hún jafnaði sig á nokkrum mánuðum eftir fæðingu en þetta er rosalega sjalgæft að lamast svona en kemur frekar fyrir óléttar konur og ef teknar eru 10 óléttar konur sem hafa lamast svona þá ganga 9 þeirra til baka en ein ekki.

Ég er voðalega smeyk við þetta og finnst voðalega óðægilegt að tala við fólk face to face :( því ég á pínu erfitt með að tala og svo er búið að vera gerast geðveikt mikið hér umhelgina og ég hef ekkert getað hitt liðið því ég vil helst ekki láta sjá mig svona :(því mér finns ég vera pínu asnaleg svona en ég fékk uppskrift að drykk sem er rosalega vatnslosandi og á maður að drekka 1 líter af honum á dag og ég er búin að vera að drekka hann núna í 4 daga núna og finnst t.d mömmu ég vera að lagast þannig það er líka eins gott að þetta geri eitthvað gagn hehe :haha: 

Það hefur svo sem ekkert meira skeð hjá mér því ég er bara búin að reyna að taka það eins rólega og mögulegt er en ég hitti samt dísina mína áðan og tókum við smá rúnt maður þorir náttla alveg að hitta hana hvernig sem maður er hehe  það er alltaf jafn gaman að hitta hana :D stelpan færði mér meiri segja gjöf sem var ferskur ananas hehe finnst þeir svo góðir ;) takk elskan fyrir ananasinn kiss kiss ástin :D en núna er dísin mín farinn inn á ak er ekki alveg sátt með það hefði viljað að hún yrði ein dag enn svo gaman að hanga með henni :D en læt þetta gott heita blogga meira seinn get ekki meira í augnablikkinu. Verið bara dugleg að skrifa í commment :haha:

 

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

17.05.2006 18:42:43 / ester

Smá tuð hehe

Jæja það er komin smá tími á blogg er búin að vera að reyna að gera eikkað hérna á síðunni minni en það gengur illa Arna var að reyna að kenna mér að gera eitthvað hérna og svo þegar maður reynir sjálfur þá gengur ekkert það er nú alveg furðulegt með það....:( verð bara að biðja hana að hjálpa mér að klára þegar hún kemur attur en það er nú lítið búið að gerast hjá mér er að fara að hætta að vinna hjá Gunnu sem mér þykkir ekki neitt rosalega gott því mér þykir rosalega gott að vinna hjá henni þarna út í sjoppu og svo er þetta svo sem ekkert mikil vinna sem ég er að vinna bara 2 kvöld í viku og svo 3 hver helgi en læknarnir vilja að ég hætti því stelpan er komin með svo mikið bjúg og grindagliðnun 8|:((ótrúlegt hvernig sumir fljúga í gegnum meðgönguna og finna ekki fyrir neinu meðan aðrir fara ekkert rosalega vel í genum þetta) ekki nóg með það að þau vilja leggja mig inn á sjúkrahús í viku til 10 daga til að hvíla mig.:S Ég sef nebbla lítið sem ekki neitt hvorki á næturnar né á daginn fyrir sársauka í öllum líkamanninum þannig ég er búin að vera safn allri þessari þreyttu upp svo er það þessi grindagliðnun,bjúg og já svo er maður orðinn aðeins of þungur að lappirnar mínar þær eru víst ekki alveg að standa undir þessu öllu  hehe;) :(en ég er ekkert alveg á því að fara því Nilton hefur svo mikla yfirvinnu eins og er og við erum með 2 börn þannig það er svolítið erfitt að fara núna en mamma er búin að bjóða alla sína hjálp. Maður verður örugglega að láta sig hafa það að fara því það á að vera mikið betra fyrir mig. Er bara svo óörugg að fara eikkað í langan tíma þar sem ég þekki engan.:S

En jæja ætla að hætta þessu væli og tuði maður sér bara til hvernig þetta fer er búin að reyna að vera rosalega dugleg að hvíla mig hér heima með tærnar upp í loftið til að geta bara verið hér heima:D því þar er soltið erfitt fyrir Nilton að sjá fyrir heimilinu og þurfa svo að koma heim og þrífa, hugsa um börnin og gera það sem gera þarf á heimilinu meðan ég er á sjúkrahúsi þannig ég verð að gera mitt besta að fara vel með mig hér heima:) svo er Alexander  búin að vera svoooooo elskulegur við mömmu sína er tilbúin að hjálpa mér í sokkana (á soltið erfitt að klæða mig í sokkana fyrir bumbunni hehe:haha:)og ná í eitthvað eða hlaupa til og láta mig fá hluti sem ég missi á gólfið svo ég þurfi ekki að beygja mig því hann segir að konur með barn í maganum mega ekki beygja sig:haha:;) . Hann er meiri segja farinn að gera hluti sjálfur sem þurfti alltaf að hjálpa honum við áður eins og t.d klæða sig í útifötin8) ;)hann er algjör elska orðinn svo geðveikt duglegur. Hann verður örugglega algjör herramaður þegar hann verður eldri hehe :haha:

Ætla að segja þetta gott í bili og fara elda handa snúðunum mínum erum bara 3 í mat í kvöld því Nilton er að vinna og kemur örugglega ekki heim fyrr en svona 8 í kvöld og ég er að fara að vinna í kvöld en lofa að blogga fljótlega  8)


» 10 hafa sagt sína skoðun

13.04.2006 14:49:03 / ester

verð að gera svona eins og hinir :D

Veldu mánuðinn sem þú fæddist-

Janúar- Ég drap
Febrúar- Ég sló
Mars- Ég svaf hjá

Apríl- Ég horfði á                                                           
Maí- Ég fróaði mér með                                                                
Júní- Ég slefaði á  
Julí-Ég hló að
Ágúst- Ég stakk
September- Ég skaut
Október- Ég naut ásta með
Nóvember- Ég handtók
Desember- Ég kúkaðiá                                                                                                                              

Veldu núna afmælisdaginn þinn-

1. Hóru
2. Kærasta/una þína 
3. Konu með HIV
4. Kynæsandi Dverg
5. Jólasvein
6. Playboykanínu
7. Giftri móðir 
8. Kennara
9. Mömmu þína 
10. Páskahérann
11. Köttinn
12. Djöflinum
13. Asíksum skiftinema 
14. Jónsa í svörtum fötum 
15. Stein
16. DVD spilara 
17. Klámstjörnu
18. Síma
19. Tölvu
20. Húsið þitt 
21. Svín
22. Lampa
23. Kúk
24. Davíð Oddson 
25. 50 cent
26. Kynskifting
27. Yddara
28. Skólaumsókn
29. Birgittu Haukdal 
30. Tappatogara
31. Prentara

Veldu annan stafinn í eftirnafninu þínu -

A-  Afþví að ég elska súkkulaði
B-  Afví að mér leiddist
C-  Afþví að buxurnar mínar voru of þröngar 
D-  Af því að þarf alltaf að prumpa
E-  Af því að hjartað mitt er tvem nr of lítið
F-  Af því að ég fékk engar gjafir um jólin
G-  Afvþví mér finnst egg góð
H-  Afþví að ég er á sýru
I-   Afþví ég misteig mig
J-   Afþví ég er með vörtu
K-  Afþví  mér líkar Cheer
L-   Afþví að ég var skökk/skakkur
M-  Afþví ég var full/ur
N-  Afþví að mamma sagði mér að gera það
O-  Afví ég er hýr
P-   Því ér er einmanna
Q-  Því mamma og pabbi eru alltaf að rífast
R-   Afví að ég er gröð/graður
S-   Því mig langar að deyja 
T-   Því ég hata skóla
U-  Því ég þarf að fróa mér
V-  Afþví að ég elska náttfata party
W-  Afþví að það róar mig
X-  Af því að ég elska marmelaði 
Y-  Afþví að ég elska prump

Ö- Því ég er að safna rassahárum          

-Skrifaðu svo í skoðanir hvað þú fékkst út, haha 0


» 11 hafa sagt sína skoðun

08.04.2006 20:38:36 / ester

Barnaland síðan mín orðin virk

Jæja þá er barnaland síðan mín komin á stað aftur :) er samt að fara að bæta fleirum bumbumyndum á hana erum að fara að taka myndir á eftir það er bara verst hvað maður er komin með mikinn bjúg það sést svo vel á mér sérstaklega á andlitinu það er eins og maður sé spik feitur hehe ojjjjj :haha:

» 2 hafa sagt sína skoðun

30.03.2006 19:27:29 / ester

Stal essu á enhverri síðu

Ég vil þakka öllum þeim sem tóku þátt í þessu fyrir neðan þótti soltið gott að lesa þetta það róaði kvíðann aðeins niður hehe J sem er ekki verra ætla bara heimta deyfingu ætla ekki að leika neina hetju með því að neita að fá deyfingu en svo er þetta örugglega svona eins og Bylgja systir segir maður eyðir  síðustu mánuðum í það að pína sig með áhyggjum af fæðingunni svo er þetta ekkert mál hehe en takk allir sem svöruðu þetta hjálpaði ég skal lofa ykkur því en læknaði samt ekki kvíðann það er kannski bara eðlilegt að kvíða aðeins fyrir þessu J   

Ég var að nördast á netinu og datt á How Stuff Works og fletti upp nokkrum orðum í ganni. Setti ást þarna inn. En þar stendur að ást sé eins og fíkn. Vísindamenn eru semsagt að finna það út að sömu efnaboð eiga sér stað í líkamanum þegar að við verðum ástfangin og þegar við erum í fíkn.
David Perrett prófessor við Saint Andrews háskólann í Skotlandi rannsakaði hvað fengi manneskju til að verða ástfangin af annarri manneskju. Í fyrsta lagi er það útlitið en við löðumst að fólki sem að eru líkar útliti foreldra manns og manni sjálfum (ahh nú skil ég af hverju fallegar konur enda alltaf með feitum gaurum). En þessi gæji tók mynd af manneskjunum og breytti þeim í photoshop eða eitthvað í hitt kynið og lagði síðan kannski 10 manneskjur á borð ásamt þessari mynd og flestir völdu sjálfan sig án þess að vita af því. Stórmerkilegur andskoti. Persónuleikinn skiptir líka miklu máli en við verðum oftast ástfangin af fólki með líkan persónuleika og foreldrar okkar eða einhver nákomin okkur úr æsku.
Árið 1986 þá fundu þeir það út að manneskjur gefa frá sér einhvern ákveðin ástar svita. En eins og flestir vita þá gefa dýr frá sér lykt til að laða að sér hitt kynið. En sumar manneskjur eru með eitthvað VNO í nefinu sem að nemur þessa lykt. Konur voru líka látnar velja óhreinar skyrtur og flestar völdu þær skyrtur af mönnum með ólíkasta ónæmiskerfi og þær. Eins asnalegt og það hljómar.
Svo er búið að flokka ást niður í 3 flokka.
Lust(sem að ég veit ekki alveg hvernig er best að þýða yfir á íslensku)
En það er rosa mikið hjá unglingum svona á meðan á þroskaskeiðinu stendur. Án girndar(fann þetta í orðabók) þá myndum við aldrei finna þessa/þennan einu/eina réttu/rétta.
Attraction( fann heldur ekkert sniðugt orð yfir þetta á íslensku)
Ef að samband er í vinnslu þá einhvern veginn er maður fastur með þessa manneskju í huganum. Þessar 2 manneskjur dragast að hvert öðru og þetta er það sem að þarf til að fara á 3 stigið.
Attachment(Þegar að 2 manneskjur kyrrsetja sig saman)
En til þess að á þetta stig náist þá þarf alvöru ást að vera til staðar en sú ást þarf að vera sterk til að komast í gegnum ýmist vandamál.

Voða gaman að lesa þetta. En hérna já vonandi fræddust þið eitthvað um þetta á því að lesa þetta.


» 4 hafa sagt sína skoðun

24.03.2006 15:44:31 / ester

Úrslit



það voru 32 sem tóku þátt....


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7